Molestin Records kynnir útgáfutónleika Gone Postal. Þessir drengir gáfu nú út fyrir stuttu frumburð sinn, In the depths of despair, og eru þessir tónleikar til að fagna þeirri útgáfu. Tónleikarnir verða haldnir í Tónlistarþróunarmiðstöðinni(TÞM) Hólmaslóð 2 laugardaginn 10.janúar. Húsið opnar 19:00. 1000 kr inn. Eftirfarandi hljómsveitir sjá um upphitun;

Embrace the plague - http://www.myspace.com/etpmetal
Swords of chaos - http://www.myspace.com/swordsofchaos
Severed Crotch - http://www.myspace.com/severedcrotch

Platan verður að sjálfsögðu til sölu á staðnum en hún hefur verið uppseld undanfarna daga. Einnig verður eitthvað um Gone Postal boli.
Þá er ekkert annað en að starta nýju ári með alvöru dauðarokki!!

Vil sjá sem flesta þarna, ætlum að gefa einhverja diska og eitthvað ruuuuuugl.

Ákvað að henda þessu inn sem grein líka, þetta er fljótt að týnast í korkunum.