VEGGSPJALD HÁTÍÐARINNAR

Það er með stolti sem ég kynni fyrir ykkur endanlegt lænöpp og staðsetningar ANDKRISTNIHÁTÍÐAR 2008!

Í ár ætlum við að hafa hátíðina tvískipta, fyrri hlutinn verður haldinn í TÞM á Hólmaslóð þar sem ekkert aldurstakmark verður og þar verður einnig til staðar Andkristnimarkaðurinn, þar sem öllum er frjálst að koma og setja upp sölubás. Þar verða seldir diskar og bolir frá hljómsveitum hátíðarinnar ásamt því að Andkristnihátíðin mun verða með “official” bol í ár henni til heiðurs ásamt því að takmarkað upplag af frábærum veggmyndum hátíðarinnar, hannaðar af Antonio Ruiz - Ominous @ Flickr - mun fást þar gefins. Einnig verða þar aðilar með diska, bækur og ýmislegt annað á boðstólum svo hafið það í huga áður en þið rjúkið í Smáralindina til að versla jólagjafirnar!

Bolur Andkristnihátíðar 2008
FRAMHLIÐ
BAKHLIÐ

Seinni hluti hátíðarinnar verður svo haldinn á Belly's í Hafnarstræti fyrir þá fullorðnu en þar er 20 ára aldurstakmark. Ástæðan fyrir þessum skiptingum er sú að mér fannst undanfarin ár vanta uppskeruhátíðarandann sem því fylgir að fagna Andkristni fram í vetrarsólstöðunóttina og var því ákveðið að framkvæma þetta á þennan hátt. Það ættu samt allir að getað fundið sér eitthvað við hæfi á þessum 11 klukkustundum sem hátíðin mun standa og ég leyfi mér að halda því fram að dagskráin hefði ekki getað verið glæsilegri!

Fram koma hljómsveitirnar:

Laugardagur 20. desember.
TÞM/Hellirinn - Hólmaslóð - kl.16:00


Atrum
Atrum @ MySpace
Severed Crotch
Severed Crotch @ MySpace
Celestine
Celestine @ MySpace
Forgarður Helvítis
Heimasíða Forgarðsins
Diabolus
Diabolus @ MySpace
Gone Postal
Gone Postal @ MySpace

*Ekkert aldurstakmark.
*Húsið opnar klukkan 16:00.
*Tónleikarnir byrja klukkan 17:00.
*Slammveisla aldarinnar


Laugardagur 20. desember.
Belly's - Hafnarstræti - kl.22:00


Sólstafir
Sólstafir @ MySpace
Darknote
Darknote @ MySpace
Bastard
Bastard @ MySpace
Helshare
Helshare @ MySpace
Snatan Ultra
Snatan Ultra @ MySpace

*20 ára aldurstakmark.
*Tónleikarnir byrja klukkan 22:20.
*Bjór & Belly's!
*Rokk fram á nótt!


MIÐAVERÐ Á HÁTÍÐINA - 1000KR.

Heimasíða Andkristnihátíðar á MySpace
Andkristnihátíð @ MySpace