Hljómsveitirnar Shogun, No Culture og S.o.S.A. (Servants of Silent Agony) spila á Akranesi fimmtudaginn 27. nóvember.

Tónleikarnir fara fram í Þorpinu (Hvíta Húsið/Arnardalur/Gamla Tónó), sem er á endanum á Þjóðbraut. (Húsnæðið fyrir ofan löggustöð og vínbúð.)

Fyrsta hljómsveit á svið kl 20:00, og frítt inn.
Áfengi er bannað inni í húsinu og þar af leiðandi líka ölvun.

Vonumst til að sjá sem flesta og munið að Shogun verða með nýja diskinn sinn, Charm City til sölu á staðnum.

takk takk