Spread the word!

Færeyska hljómsveitin Týr, sem á m.a. mest seldu plötu útgáfufyrirtæksis síns nú um þessar mundir, er að koma til landsins til að spila á fjórum tónleikum nú um helgina. Verða þeir á Paddy’s í keflavík á morgun fimmtudag, Græna Hattinum Akureyri á föstudaginn, Nasa laugardaginn og Hellinum á sunnudaginn á tónleikum fyrir alla aldurshópa.

Sveitin kemur til landsins í dag og ætlar að kíkja við í Smekkleysu plötubúð, Laugavegi 35, kl 17:00 og spjalla við gesti og gangandi og árita diska og einnig plaköt sem hljómsveitin ætlar að gefa. Takmarkað magn plakata er til, þannig að fyrstir koma fyrstir fá.

Miðasala á tónleika Týr fer fram í Smekkleysu plötubúð, Paddys og Hljómval Keflavík og í Pennanum Akureyri.

http://www.hivenet.is/restingmind/pics/Tyr/flyer.jpg
Resting Mind concerts