Hljómsveitin Perla, sem er ein allra besta sveit að mínu mati á Íslandi nú um stundir, er að taka upp sína fyrstu plötu “Í tregafullum hljóm” í Bandaríkjunum as we speak. Gaurarnir komust í samband við Neil nokkurn Kernon, producer extraordinaire, í gegnum mig af öllum aðilum og eru að plumma sig vel núna í Chicago að taka upp í Rax Trax stúdíóinu þar.

Fyrir þá sem ekki vita er Neil Kernon stórstjarna í producer heiminum. Hann hefur margsinnis verið tilnefndur til Grammy verðlauna og einnig unnið þau. Hann hefur unnið með böndum á borð við Hall & Oates, Queensryche, Cannibal Corpse, Nile, Queen, Macabre, Skinless, Brand X, Kansas, Judas Priest, Nevermore, Spiral Architect ásamt mörgum mörgum öðrum.

Sjá hér hvað liggur eftir kappann: http://www.allmusic.com/cg/amg.dll?p=amg&sql=11:gjftxqw5ld0e~T4

Perla vann í fyrra keppnina Global Battle of the bands og fór í kjölfarið út til London að keppa í lokakeppninni þar. Þetta eru ótrúlega færir drengir að mínu mati og það verður rosalegt að heyra í þeim þegar gripurinn verður tilbúinn, en Neil mun einnig sjá um að mixa hana.

En, drengirnir í bandinu eru með myndavélina á lofti þarna ytra og hafa gert 2 myndbönd núþegar um þessa svaðilför sína:

Þið getið séð þetta á myspace'inu þeirra:

http://www.myspace.com/musicperla

Annars dýrka ég lagið Heilagt Stríð þarna á síðunni… og þetta er EKKI útgáfan á plötunni, heldur demó.
Resting Mind concerts