Þann 21. Desember verður haldin SÓLSTÖÐUHÁTÍÐ í Tjarnarbíói. Andkristnihátíð in í fyrra tókst með miklum ágætum utan
að hún var haldin á vínveitingahúsi þannig að stór hópur yngri rokkara og metalhausa komst ekki inn.
Á þessu hafa verið gerðar úrbætur með því að hafa þessa hátíð í Tjarnarbíó í ár.

Á Sólstöðuhátíð hafa þegar verið bókaðar FORGARÐUR HELVÍTIS
(sem gefa út stóra plötu snemma á næsta ári), SÓLSTAFIR,
MÚSPELL (Dauðarokkarar frá Helvíti) og CHANGER.
Það fólk sem þekkir til hljómsveitanna veit að þetta getur ekki orðið annað en rosalegt. Planað er að hafa á þessu veglegan hátíðarbrag með ýmsum uppákomum milli hljómsveita og áróðri varðandi uppruna og tilgang jólanna.
Allir að mæta..