Eistnaflugsdjammið - upphitun fyrir hátíð sumarsins Laugardaginn 19. maí á Classic Rock í Ármúla verður hin svokallaða Eistnaflugs upphitun.

Um er að ræða kynningu á tónleika hátíðinni Eistnaflug sem fer fram dagana 13 og 14. júlí á Neskaupsstað.
Bryddað verður uppá tónleikum og frumsýningu heimildarmyndar um Eistnaflugshátíðina sem fór fram í fyrra.

2 sýningar verða settar upp samdægurs, sú fyrri fyrir alla aldurshópa sem hefst um 18 leytið. 3 hljómsveitir munu
leika listir sínar og eftir það verður myndin sýnd. Seinni sýningin hefst á milli 21:00 og 22:00 með sama sniði en að þessu sinni verður
20 ára aldurstakmark og ýmis tilboð á boðstólnum.

Hljómsveitirnar sem leika eru
Severed Crotch
Myra
Ask the Slave


Athugið að það er ókeypis aðgangur.


Ítarlegri upplýsingar má finna á www.eistnaflug.is