IRON LUNG í Reykjavík 8.-9. maí, kærkominn hvíld frá próflestri GAG og vinir, kynna með óhóflegu stolti:

IRON LUNG, San Fransisco, USA


NÁMSTÆKNISTOFA ÍSLANDS MÆLIR MEÐ JÁKVÆÐRI HVÍLD FRÁ
PRÓFLESTRI DAG HVERN


“IRON LUNG, frá USA hefja Evrópuferð sína á Íslandi”.

Áskorun:
Iron lung spila extreme tónlist sem erfitt er að
skilgreina nema að hún sé ofsafengin, þung og sér á
báti. Þessi ofurþétti dúett gerir ótrúlega hluti á
stuttum tíma og samspil þessa tvíhöfða er eitthvað sem
þú mátt ekki missa af.
Hljóðheimur Iron Lung er afrakstur mikillar vinnu og
yfirlegu meðlima bandsins sem leitast við að opna áður
vel þekkt form eins og grind, crust, powerviolence og
argasta metal með nálgun sem ekki er jafn rótgróin og
hjá svo mörgum öðrum. M.ö.o., fersk tónlist.
Þannig á ég t.d. með þeim 5 tommu vínil (sem er stysta
vínil format sem völ er á), en á því má heyra beygjur,
teygjur og óvæntar skiptingar sem “meika senns” þrátt
fyrir stuttan tíma laganna og maður veit aldrei á
hverju maður á von. Smyrjið ofan á fyrrgreinda
lýsingu, ofsa og drunglalegum sömplum í bland við
hugmyndaríkan trommuleik og bjagaðan en jafnframt
blýþung gítarriff.



Þær hljómsveitir sem nú þegar hafa tilkynnt skiptingu
á loftögnum við sama tækifæri og Iron Lung er:

Death Metal Super Squad - drýfandi, einlægt en
jafnframt tilfinningaþrungið punk frá þessu frábæra
tríói undir áhrifum Leatherface, Manifesto Jukebox og
No Hope For The Kids
Celestine - Eitt efnilegasta þungarokksband landsins.
Háþróaður metall, gríðarleg þyngsl og angurvær
atmo-kaflar. Fyrir aðdáendur Isis, Botch, Buried
Inside o.s.fr.
Plastic Gods - Blýþungt og refsandi samkurl doom,
sludge og stoner þungarokks. Dáleiðandi á köflum.
I Adapt - reynsluboltar. Nýkomnir af annasömum
Bandaríkjatúr með nýtt efni í farteskinu og kynna
nýútkomna þröngskífu sem ber nafnið, From Town To
Town.

Fljölbreytt, framandi og örvandi lænöpp.

Þriðjudaginn 8. maí, all ages, Kaffi Hljómalind,
800kr. stundvíslega kl 19:00

Iron Lung
Death Metal Supersquad
Plastic Gods

Miðvikudaginn 9. maí, Barinn, 800kr. kl. 21:00
Iron Lung
I Adapt
Celestine

Iron Lung hafa með sér tónlist og annan varning til
sölu fyrir allt fólkið sem þeir koma til með að heilla
upp úr skónum.

Iron Lung tóndæmi: www.myspace.com/gagnaugad