Judas Priest - Screaming for Vengeance Fyrir nokkrum dögum setti ég inn grein á rokk sem var gagnrýni á Judas Priest plötuna screaming for Vengeance.Ég biðst afsökunar á að hafa sett það í rokk.Ég veit að það er metall,en því miður tók ég óvart ekki eftir greinunum í metal þannig að ég ákvað að setja það í rokk.


En nú ætla ég að setja gagnrýnið inn aftur og betrumbæta það því ég var sonna kortér að skrifa þau og var ekkert mikið að vanda mig


ég veit ekki hvernig það á að setja inn
plötu-review þannig að ég set það hérna.
Fyrir viku keypti ég mér geisladisk með Judas Priest sem heitir Screaming For Vengeance:The Remasters.
Öll lögin á þessum disk eru samin af Söngvaranum Rob Halford og gítarleikurum Glenn Tipton og K.K. Downing nema eitt lag sem er (Take These) Chains.Þessi diskur var gefin út árið 1982 og var fyrsta platinum-plata Judas Priest.

Röðin á disknum:

The Hellion
Electric Eye
Riding on the wind
Bloodstone
(Take These) Chains
Pain and Pleasure
Screaming for Vengeance
You've got another thing comin'
Fever
Devil's child

Bonust Tracks:
Prisoner of your eyes
Devil's child (live)


Þessi diskur byrjar á laginu the Hellion sem er bara instrumental.Flott lag.Örninn/Drekinn á plötunni er The Hellion.Þetta lag er intróið á disknum.
Electric eye er beint framhald af The Hellion,flottur texti og mjög flott viðlag! Uppáhaldslagið mitt af disknum.
Riding on the wind er mjög fjörugt lag en ekki það besta sem þú heyrir.Kannski gaman að hlusta á ef þú ert að keyra….
Bloodstone er eitt af þeim lögum sem þú pínir þig til að hlusta á.Lagið hefur flottan texta en leiðinlegt viðlag.
(Take These) Chains er mjög gott lag.Eina lagið á disknum sem er ekki samið af Rob Halford,K.K. Downing og Glenn Tipton.Þetta er týpískt svona ,,ég er þræll þinn''lag.
Pain and Pleasure er flottur texti,flott intró,flott vers og flott viðlag.Uppörvandi lag.
Titillagið er svo næst sem er náttúrulega Screaming for Vengeance,mjög flott lag.Harður texti.Ávanabindandi lag.
You've got another thing coming er flott lag en eitt af þeim lögum sem þú nennir að hlusta bara nokkrum sinnum á.
Fever byrjar rólega en verður síðan fjörugt og skemmtilegt.Fáránlegur texti :S.
Devil's child er leiðinlegt lag,en mjög vel saminn texti.
Bonus trackið Prisoner of your eyes var tekið upp 1985 og er mjög langt og ekkert mjög skemmtilegt.

ég gef þessum disk 8.9 í einkunn og ég mæli mjög með honum.

From an unknown land and through distant skies came a winged warrior.Nothing remained sacred,no one was safe from the Hellion as it uttered it's battle cry…….Screaming for vengeance.
Bartender: What do You Want?