Sú ákvörðun var tekin eftir tónleika þessarar norsku sveitar á föstudagskvöldið að henda upp all ages tónleikum fyrir þá, enda kom bandið verulega á óvart, eins og m.a. er haft eftir Sigga Pönk og Birki I Adapt. Bandið er verulega þétt og einstakt á þessum tímum þar sem hvert bandið á fætur öðru hljómar eins og öll hin böndin. Tónlist Quiritatio er einlæg, frá hjartanu og unique.

Búið er að staðfesta Changer, Severed Crotch og Morðingjana í upphitun.

Einungis 500 kall inn!!

Húsið opnar milli 19 og 20, en ákveðnar tímasetningar verða tilkynntar mjög fljótlega þegar endanlegur fjöldi banda er þekktur.

Tóndæmi á http://www.myspace.com/quiritatio en þið getið downloadað öllum þremur lögunum sem þar eru, auk þess að hlusta beint, en mælt er með download möguleikanum, þar sem lög á myspace eru oft í verri gæðum í streaming version.

Heimasíða: http://www.quiritatio.net/ Hægt að downloada mp3 þar.

Quiritatio verða með varning til sölu, þannig að menn geta styrkt þá með því að versla af þeim slíkt, boli og diska.
Resting Mind concerts