Changer - Inconsistency Sælir metalhausar til sjávar og sveita! Fjögurra laga diskur okkar Changer manna sem ber nafnið Inconsistency er kominn út. Á disknum er að finna tvö ný lög, Feelings: Deleted og Lost Chances svo og tvö lög sem eru endurgerð af January 109, Religion in Flames og Fields of Fear. Diskurinn fæst í verslunum Japis í Kringlunni og á Laugarvegi, og í Hljómalind Laugarvegi og kostar 1000 kall. Einnig er hægt að nálgast diskinn í gegnum e-mail á changer@madmail.com.

Fyrirhugað er stefnumót Undirtóna þann 7. ágúst á Gauk á stöng þar sem ásamt Changer munu spila eðal-metalböndin Sólstafir og Forgarður Helvítis! Endilega mætið og moshið af ykkur þynnkuna!

Jói