Deftones - Chino of fullur til að syngja Söngvari Deftones Chino Moreno skemmti sér alveg órúlega vel á laugardaginn, þar sem hljómsveitin var að spila á Waldrock festivalinu í Bergum, Hollandi (en því miður var aðdáendum sveitarinnar ekki skemmt). Söngvarinn var svo ótrúlega drukkinn að hann gat varla staðið og eyddi stórum hluta af tónleikum sveitarinnar (sem var aðal band hátíðiarinnar) á liggjandi á sviðinu. Í viðbót við það girti hann niður um sig, setti typpið á sér á milli lappana og bað allar konur á svæðinu að sína á sér kynfærin (sem fór afar illa í konurnar á svæðinu). Á þessum tíma voru allir tónleikagestir farnir að kasta drasli í bandið, í viðbót við að púa á bandið (meira að segja hörðustu aðdáendur bandins). Mike Muir söngvari Suicidal Tendencies kom á sviðið til að taka lag með sveitinni, en vissi ekki hvað hann átti að gera þar sem Chino var svo ótrúlega útúr heiminum. Á milli laga eyddi hann tímanum sínum í að tala illa um Fred Durst og sögðu tónleikagestir það varla viðeigandi þar sem hann gat ekki sungið laglínu sjálfur á þessum tónleikum.