Throwdown - Haymaker Throwdown - Haymaker

Árið 2003 gaf Bandaríska Metalcore bandið út sinn 4. disk “Haymaker” sem að er búin að vera í frekar miklu uppáhaldi hjá mér síðan. Þeir skiftu frá Indecision yfir í Trustkill records með þeim disk, sem heyrist ef maður hlustar glöggt.

Lögin á disknum eru:

1. Intro (Never Back down)
2. Walk Away
3. Nothing Left
4. You Cant Kill Integrity
5. Forever Hopeless
6. Declare Your War
7. False Idols
8. Slip
9. Hate For The Weak
10. The Only Thing
11. Step it up
12. Face The Mirror
13. Raise Your Fist


Diskurinn er pínu breyting frá því sem þeir höfðu áður gert og ekki voru allir sáttir með það enda hefur diskurinn fengið mjög blandnar móttökur. Þeir sem voru aðdáendur fyrir komu Haymaker, fannst hann vera mikil vonbrigði eftir “You dont have to be blood to be family”, margir af þeim sem byrjuðu að hlusta á bandið af einhverri alvöru eftir Haymaker finnst það oft vera þveröfugt.

Haymaker er svona svoldið töff blanda af Hatebreed, Pantera og Korn, sett í Metalcore mixer. En það eru skiftar skoðanir um þetta.

Diskurinn inniheldur varla eina einustu mellódíu, bara þétta takta og flottan innlifaðan söngvara, með alveg hreint furðulega jákvæðan boðskap. Þema´ið yfir disknum er basicly, “Be yourself – Respect Other People – Dont take Any shit from people that dont respect you – Be a good friend and stick with your family” Sem að er virkilega a breath of fresh air inní metal safnið mitt ; )

Verður að vísu frekar kjánalegt að heyra söngvaran Dave Peters öskra sig hásan “To My Friends! I´ll be there for you, for you´ll be there for me!” eins og eitthvað geðveikt reitt “Friends” intro lag. En hápunktarnir hjá þeim verða samt alveg vængefið kraftmiklir og furðulega catchy, sérstaklega þar sem þeir keyra kannski sama riffið í gegnum lagið í mid tempo og hægja svo á því í endanum fyrir innlifuðustu öskur Dave´s. [Pínu Rage against the machine fílingur þar, finnst mér].

Allt í allt er þetta mjög þéttur diskur í gegn, sem aðdáendur KoRn og Hatebreed ættu að fíla í tætlur : )

8/10

Crestfallen