Sæl

Ég var að rekast á það á netinu að annar höfunda sænska lagsins í ár, Listen to Your Heartbeat, er maður að nafni Thomas G'son, en hann er einn af aðalmönnum í sænsku þungarokkssveitinni Masquerade.

Svo virðist vera sem kallinn drýgi tekjurnar eitthvað við að skrifa popplög, en hann er víst nokkuð eftirsóttur sem slíkur… Lagið hans þarna er heldur ekki svo slæmt, ef menn geta fílað ABBA í bland við metalinn sinn…

Masquerade þessi hefur gefið út þrjár plötur, þetta er svona melódískt Progressive / traditional Metal, í það minnsta miðað við hina afbragðsgóðu plötu þeirra Surface of Pain.

Heimasíða hljómsveitarinnar: http://www.sorcerystudios.com/masquerade

Þorsteinn
Resting Mind concerts