Ég verð nú að segja það að ég er orðinn verulega þreyttur á þessum er þessi hljómsveit betri en hin.

Oft á tíðum er verið að bera saman hljómsveitir sem eru það ólíkar að maður gæti allt eins sprt hvort finnst þér betra stígvél eða trefill.

Ég var að fletta í gegnum þær kannanir sem hafa verið settar upp hér í metall, og ég verð að segja það að þetta eru einhverjar undarlegustu samsetningar sem ég hef séð á allri minni hunds og kattartíð.

Eins og til dæmis Iron Maiden vs Guns ‘n’ Roses! Það eina sem þessar hljómsveitir eiga sameiginlegt er það að það var sama hljóðfæraskipan áður en Maiden fékk Adrian Smith til liðs við sig aftur og þar með að notast við 3 gítarleikara.

Önnur: Hvaða bassaleikari Metallica var/er bestur? Heimskuleg spurning þar sem enginn þeirra hefur/hafði sama spilastíl og hinn!

Ef þú þyrftir að velja hvaða meðlimur Metallica hefði dáið 27. September 1986, hvern hefðir þú valið ????? WTF hver heilvita maður hefði viljað að afsagaða baunaspíran Lars hefði drepist þarna, hann er búinn að myrða allt sem var gott og flott við Metallica að MÍNU MATI.

Iron Maiden Vs Metallica? COMMON þessar tvær hljómsveitir eiga ekkert sameiginlegt nema það að hafa verið með vinsælustu metal hljómsveitunum í áraraðir, tónlistin EKKERT lík ekki hægt að bera þetta saman af einhverju gagni!

Korn vs Nirvana? Þarf eitthvað að útskýra hvers vegna þessi könnun er rugl??????????'

Slipknot vs Cradle Of Filth? HALLÓ!!! hvað er líkt með þessum tveimur hljómsveitum????????? EKKERT Botnleðja hafði þá rétt fyrir sér FÓLK ER FÍFL!!!!!!!!

Metallica vs Ac/Dc þessi könnun er algjörlega útí hött! Til að byrja með var Metallica Thrash metal fór svo yfir í einhverja kántrí rokks drullu sem þeir kölluðu Load og Re-Load og svo yfir í eitthvað Nu-Metal crap sem Linkin Park mundi skammast sín fyrir, á meðan Ac/Dc eru,voru og munu alltaf vera rock'n'roll!!!

Hvaða trommari er bestur djís hvernig er hægt að líkja saman Lars Ulrich (Metallica) og Travis (Blink 182) ég bara spyr????????

Ég hef hvorki þolinmæði né þor í að skoða fleiri kannanir þar sem megnið af þeim er einhver sú almesta steypa sem fólk hefur ælt uppúr sér frá örófi alda!!!!!!!!!!

Þeir sem hafa einhverja skoðun á þessari grein endilega látið flakka, þeir sem sjá ekki heimskuna í þessum könnunum……………………
BC Rich NT Virgin, BC Rich NJ Deluxe Warlock5, BC Rich Warlock NJ Series(1986-'88), BC Rich ASM Pro Neck-thru, Jackson Kelly KBX