Comeback kid, I adapt, Hölt hóra & Lada sport í MH Hljómsveitin COMEBACK KID mun spila í Norðurkjallara MH næstkomandi þriðjudag, 26. október

Síðastliðin ár hefur eitthvað meiriháttar verið að gerast í hardcore/pönk heiminum í Kanada. Ógrynni af frambærilegum hljómsveitum hefur sprottið upp og er COMEBACK KID af mörgum talnir þar fremstir á meðal jafningja. Þeir hafa yfir að ráða smekklegum melódíum og harmóníum á hárréttum stöðum sem og ómótstæðilega danskafla sem engin stenst. Og til að halda þessu réttu megin við línuna þá er hraðir taktar sem halda þessu öllu saman en eru brotnir upp með geysilegum beatdown köflum. Ofan á þetta bætist æsileg og kraftmikil sviðsframkoma.

COMEBACK KID hafa á skömmum tíma náð ótrúlega mikilli hylli um heim allan. Svakalegt að sjá upptökur af tónleikum bandsins þar sem viðbrögðin eru eins tryllt og hjá gæða böndum sem hafa unnið að þessu í áraraðir.

Síðasta plata COMEBACK KID; Turn It Around er að mörgum talin sú besta síðustu misserin og hefur þeim verið líkt sem blöndu af Terror, Bane, Carry On og Stretch Armstrong. Sem sagt, hér mæta grípandi tónar hörkulegum riffum með góðum árangri. Nægilega hart til að gleðja metalhunda og metalcore fólk… nægilega hraðir og trúir gamla skólanum svo að pönkararnir stígi dansinn…. Eitthvað fyrir alla.

Tónleikarnir verða eins og áður segir þriðjudaginn 26. október í MH ásamt COMEBACK KID koma fram

I ADAPT (hafa aldrei verið betri en núna og eiga að baki tugi snargeðveikra tónleika)

HÖLT HÓRA (afar frambærilegt og spennandi tónleikaband sem flestir þekkja núþegar enda verið duglegir við spilamennsku og heyrast ótt og títt á öldum ljósvakanna. Hrátt og gríðandi rokk með pönk undiröldu.)

LADA SPORT (ungt og efnilegt rokkband sem vakti mikla athygli í síðustu músíktilraunum og hefur vaxið ásmeginn eftir það)

Tónleikarnir hefjast kl. 20:00

Ekkert aldurstakmark

Aðeins 1000kr. Inn

Þetta verða skemmtilegir tónleika og æsingur mikill. Eitthvað sem enginn má missa af!! Grasrótin lifir góðu lífi!

Kynningarsíða vegna tónleikanna: www.dordingull.com/tonleikar

MP3 skrár: http://notendur.centrum.is/~drastl/ComebackKid

Heimasíða sveitarinnar: www.comeback-kid.com