Comeback Kid frá Kanada með tónleika hér á landi 26.okt Hin stórkostlega hljómsveit Comeback Kid frá kanada heldur tónleika hér á landi 26. október næstkomandi í musteri rokktónlistar hér á landi: Norðurkjallara Menntaskólans við Hamrahlíð. Eftir aðeins eina útgáfu hefur hljómsveitinni tekist að verða ein mest áberandi hardcore sveit heimsins í dag og virðist sveitin fá ekkert nema góð orð í sinn garð þegar maður les um sveitina á netinu.

Tónleikarnir hefjast klukkan 20:30 og munu hljómsveitirnar I adapt, Hölt hóra og Lada sport. Sjá um að halda hita í tónleikagestum. Það kostar aðeins 1000 kall á þessa tónleika og því um að gera að taka vini og vandamenn með sér þar sem þarna er gott tækifæri til að sýna öllum efasemdarmönnum hvað skemmtilegt er á tónleikum hér á landi.

Einnig væri ekki vitlaust að taka með sér smá aukapening þar sem búast má við að sveitir kvöldsins verði með einhvern varning til sölu.

Sjáumst í norðurkjallaranum!


www.comeback-kid.com
www.dordingull.com/tonleika