Þær hrikalegu fréttir voru gerðar opinberar í dag að trommari Tool Danny Carey hefur ákveðið að yfirgefa hljómsveitina og mun ekki spila með þeim á Evrópu-túrnum í sumar. Engum tónleikum hefur enn verið frestað og eru strax farnar að heyrast raddir um að Josh Freese sem lék með A Perfect Circle á nýju plötunni Mer de Noms muni fylla skarð Careys við trommusettið. Ástæðurnar fyrir brotthvarfi Careys eru ókunnar og verður að teljast skrítið að hann skildi yfirgefa hljómsveitina þegar allt virðist ganga í haginn, ný plata og auknar vinsældir í augsýn.
Eitt er víst að tónlistariðnaðurinn má ekki við því að þetta snilldarband hætti því þá er ekki mikið eftir af almennilegum hljómsveitum.