Fyrsti singullinn af Lateralus, nýju plötu Tool heitir Schism. Hér er það sem Kerrang! hafði um lagið að segja:
“The most immediate track we heard. The tempo on this seven-
minute song is mid-paced but driving and powerful with searing,
urgent vocals, a great guitar riff and a surprisingly catchy chorus.”
Raddir segja að þetta lag sé væntanlegt í útvarpsspilun mjög fljótlega og er talið líklegt að það verði sett í útvarpið um sama leyti og Tool-Webcast verður haldið á heimasíðu Tool www.toolband.com, en það verður 17. apríl sem er upphaflegur útgáfudagur plötunnar (var frestað til 15. maí) og jafnframt afmælisdagur Maynard James Keenan forsprakka hljómsveitarinnar. Það verður spennandi að fá að hlýða á nýjan Tool slagara bráðlega.
Hér er einnig staðfest cover á Lateralus.