ég hlusta ekki á metallica , en mér sýnist eins og anti-metallica dæmið vera einnig tískubóla nákvæmlega eins og að dýrka þá. Þetta er bara duran duran vs. Wham dæmið áratug síðar og þið eruð bara partur af spilverki tískunnar…. Sjáið þið ekki hversu bjánalegt það er af ykkur að tala um hluti eins og hver er að klæðast hvaða fötum hmmm?
En um leið og þið farið að dæma aðra eftir því hverju þeir klæðast þá finnst mér það sjálfsagt að ég geti dæmi ykkur öll eftir postunum ykkar á hinum þráðunum… og ég get sagt með vissu að þið eruð mjög tómt fólk sem hugsið bara um hvað öðrum finnst og frekar en að fylgja eigin sannfæringu þá látist þið bera með straumnum…..

Það gerir ekkert gagn að skrifa hérna svara og segja :“ NEI! það sem ég hef að segja er rétt!! þú ert auli!” , eyðið frekar orkunni í að hugsa áður en þið skrifið fólk….


Ég geri mér einnig grein fyrir því að mikið af fólki hérna er mjög ungt og tek tillit til þess en finnst líka að við ættum að sýna því hversu magnað metall getur verið og ekki vera að láta eins og fífl og kasta skít yfir hvort annað.
Heldur leiðbeina þeim hvað er okkur finnst persónulega vera gott og ekki vera að rífast eins og smábörn ef einhver hefur aðra skoðun en þú….


Takk fyrir..
Hafsteinn