The Locust The Locust er 4 manna band frá heimabæ extreme punktónlistarinnar, San Diego og hafa þeir verið í gangi í uþb. 1994 en þeir gáfu út sína fyrstu plötu árið ‘95. Það var 10“ split með hljómsveitinni Man is the bastard en stuttu seinna gáfu þeir svo út 5” litaplötu með spazz-like snillingunum í Jenny Piccolo. Árið 1998 kom svo loksins út þeirra eigin plata sem bar nafnið Flight of the wounded Locust. 24 lög með the Locust spiluðu á aðeins í kringum 13 mín. Sú plata seldist einstaklega vel og fór hróður bandsins sí hækkandi út um gjörvallan heiminn.

Meðlimir bandsins eru ekki af verri endanum en þeir er fyrrverandi og núverandi meðlimir í böndum eins og Some Girls, The Crimson Curse, Holy Molar, Cattle Decapitation (Alec Empire) og mörgum fleiri sem ég man ekki akkúrat núna.

Árið 2003 gáfu The Locust svo loksins út aðra full length plötu, voru þó búnir að hella út split plötum og slíku síðan ’98 (eins og tildæmis splittinu með noise meisturum japans Melt banana), en hún ber heitið Plague Soundscapes. Það ber meira á þróun í tónlist þeirra Locust drengja en þeir hafa ekki mist nokkurn part af brjálæðinu sem er kennimerki þeirra.

Þannig ef þú ert fyrir extreme/chaotic tónlist og ert opin/n fyrir nýjungum þá er þetta band eitthvað fyrir þig.
Svo er þetta band með þeim betri live böndum sem uppi eru í þessum geira og tala ég þá af eigin reynslu.

www.TheLocust.com