Vision Of Disorder Vision Of Disorder hafa tekið upp 15 ný lög fyir nýju plötuna “From Bliss To Devastation”. Af þessum 15 lögum má aðeins búast við að 12 þeirra verði á sjálfri plötunni. Þessa stundina er sveitin að hljóðblanda plötuna og eru núþegar búnir með 4 lög. Búast má við að búið verði að hljóðblanda plötuna í lok mánaðarins.

frétt tekin af dordingull.com