Hvar er Zack??? Sólinni hefur verið þjappað niðufyrir sjóndeildarhringin og þrýstir bitru myrkrinu frá nývöknuðum Asíubúm og neyðir það á flótta til hins gegnumfrosna norðurs.
Það er þá sem Crestfallen fer á stjá og þá er engri pælingu þyrmt, sama hve fáranleg hún er.
Sú útvaldna pæling sem lenti í því óhappi að læsast í huga mér er, “HVAR Í FOKKANUM ER ZACK DE LA ROCHA!?”

Ég hef beitt þessari pælingu allhrottalegum pyntingum upp á síðkastið, með því að snúa henni á allavegu í huga mér, haldið henni á hvolfi og pælt, þangað til það fossaði blóð útúr eyrum hennar.

Ég bara skil þetta ekki! Hvar er maðurinn, sem prýddi Rapcore goðsögnina Rage Against the machine?
Fyrir nokkrum mánuðum, var ég að japla á sykruðu Korn Flakes´i þegar ég gotaði í lítinn pistil í fréttablaðinu þar sem stóð að Brad pitt hefði slegist í för með því fræga fólki sem var á móti stríði í Írak.

Eins og ég gefi fljúgandi fokk um hvað Brad Pitt finnst um alþjóðlega pólitík!

Ég myndi nú halda að Zack yrði sá fyrsti til að kúka á þetta stríð á forsíðu allra helstu blaða. Afhverju hefur hann ekkert að segja!? Er honum bara sama hvað er að gerast í heiminum eftir að hann hætti í Rage? Ég vill allaveganna halda því fram að hann myndi ekki sitja þegandi og hljóðalaus yfir svona atburðum á tíma Rage Against the Machine!

Ef einhver hefur vitneskju hvað maðurinn er að gera þessa dagana, eða hvort það sé endanlega búið þagga niður í honum, endilega látið mig vita.

Crestfallen