Sænskur "partý-metall" Nú man ég ekki hvort að ég var búinn að pósta grein um þessa hljómsveit hérna en ég ákvað bara að senda þetta inn engu að síður. Það er ærið tilefni til því að fréttir herma að þessi sveit sé á leiðinni til landsins innan skamms…

Gautaborg hefur löngum verið þekkt fyrir að ala af sér margan tónlistarmanninn, eins og reyndar víðar í Svíþjóð. Meðal þungarokksaðdáenda hefur þessi borg verið sérstaklega áberandi og jafnvel getið af sér sinn eigin stíl, nefnilega hinn svokallaða melódíska dauðarokksstíl sem hefur þá verið kallaður Gautaborgarmetall. Nægir þar að nefna hljómsveitir eins og In Flames, Soilwork, Dark Tranquility, At the Gates og The Haunted. Auðvitað eru þó ekki allar þungarokkshljómsveitir þaðan sem spila dauðarokk, og meðal þeirra er hljómsveitin Freak Kitchen.

Freak Kitchen er hljómsveit sem gítarsnillingurinn Mattias ?IA? Eklundh setti saman í byrjun síðasta áratugar. Mattias fékk til liðs við sig tvo aðra tónlistarmenn og saman gáfu þeir út sína fyrstu plötu, Appetizer, árið 1994. Þessari plötu var gríðarlega vel tekið af sænsku pressunni og var sveitinni veitt ýmis verðlaun og viðurkenningar fyrir hana. Þetta gerði það að verkum að haldið var út í stórt tónleikaferðalag, þar sem meðal annars var spilað á Hróarskelduhátíðinni árið 1995.

The Apple Horn
Hljómsveitinni var einnig gríðarlega vel tekið í Japan sem leiddi til þess að japanska gítarfyrirtækið Caparison Guitars setti sig í samband við Mattias og gerði við hann stuðningssamning. Mattias á núna sinn eigin sérhannaða Caparison signature model gítar sem kallast ?The Apple Horn?.

Tengsl við Steve Vai
Mattias er mjög virtur gítarleikari og rekur sinn eigin gítarskóla undir heitinu Freak Guitar School, en ?Freak Guitar? er einmitt það sem spilastíllinn hans hefur verið kallaður. Mattias er mjög eftirsóttur gítarleikari og kemur títt fram út um allan heim með sýnikennslu á gítarinn (hann heldur svokölluð guitar clinics) en 1995 gaf hann út kennslumyndband á gítar sem bar einmitt heitið Freak Guitar vol. 1.

Árið 1999 gaf hann svo út sólóplötu einnig undir þessu heiti en á henni sýnir hann snilli sína í 22 instrumental lögum og breiðir m.a. yfir hin ódauðlegu lög La Bamba og Detroit Rock City. Þessi
plata barst til eyrna Steve Vai sem varð svo hrifinn af henni að hann ákvað að gefa hana út á sínu eigin hljómplötufyrirtæki í Bandaríkjunum sem kallast Favored Nations. Þess má geta að meðal hljómsveita á samning við það fyrirtæki eru t.d. The Yardbirds sem spiluðu hér á landi ekki alls fyrir löngu.

Útgáfumál
Freak Kitchen hefur gefið út fimm breiðskífur:
- Appetizer (1994)
- Spanking Hour (1996)
- Freak Kitchen (1998)
- Dead Soul Men (2000)
- Move (2002)

Eftir Mattias liggja svo eftirfarandi sólóverk:
- Freak Guitar vol 1, myndband (1995)
- Mr. Libido (1997), CD
- Freak Guitar (1999), CD

Hann er auk þess mjög vinsæll session gítarleikari og hefur leikið inn á nærlega 30 hljómplötur síðan 1987 með hinum ýmsu hljómsveitum/listamönnum út um allan heim.

Meiri upplýsingar
Heimasíða sveitarinnar. http://www.freakkitchen.com
Heimasíða Mattias IA Eklundh: http://www.freakguitar.com
Heimasíða Favored Nations: http://www.favorednations.com

Tóndæmi
af plötunni Move:
Nobody's Laughing - http://www.restingmind.com/sounds/Freak_Kitchen/Freak_K itchen_-_Move_-_02_-_Nobody's_Laughing-clip.mp3 (3,4 MB)
Appetizer - http://www.restingmind.com/sounds/Freak_Kitchen/Freak_K itchen_-_Appetizer.mp3 (7 MB)

Video
Nobody's Laughing - http://www.restingmind.com/video/Freak_Kitchen/freak_ki tchen_-_nobodys_laughing.rm (Real Video, um 6,5 MB)
eða
http://www.eldh.com/nobodyslaughinghere.mov (Quicktime, 7,7 MB)
Resting Mind concerts