Tónleikar - Föstudagsbræðingur

Núna á föstudaginn eru tónleikar í tónleikaröðinni Föstudagsbræðingur.
Tónleikarnir verða haldnir í samvinnu við okkur hérna á dordingull.com.

Á tónleikunum sem hefjast klukkan 20:30 spila hljómsveitirnar Forgarður Helvítis, Snafu, Andlát, Moussaieff og Desibel . Það er að sjálfsögðu frítt inn á tónleikana sem áður og ég ráðlegg auðvitað öllum að koma til að slappa af í prófunum. En munið ekkert rugl!