Ég hef verið að velta fyrir mér að ekki er nóg um leður og keðjur í metal þessa dagana.

Nú eru auðvitað tímar leðurdúkkna einsog Britney Spears og fleiri. En hver man ekki eftir gömlu góðu leðurklæddu metalhausunum. Ég gerði hér einu sinni ekkert skemmtilegra en að klæða mig í leðurgallann minn og taka allar keðjurnar úr skápnum og fara á alvöru tónleika að slást.

Ég hef svosem gaman að sjá þessar dúkkur klæddar í leður en ég vil sja fleiri metal karla í leðri. Hver man t.d. ekki eftir böndum á borð við black “fucking” wall og rose in heaven.

Ég fer reyndar stundum (því miður of sjaldan) niður í bæ með félögunum að slást og þá eru keðjur auðvitað nauðsynlegar. Af og til fer maður svo í gallan góða sem er orðinn vel slitinn, trúðu mér.

Ég vil endilega að þið metal og slagsmála vinir mínir farið nú að fjölmenna niður í bæ. Takið úr skúffunum keðjurnar, gleraugun, gallana, svipurnar, grimmdina og allt heila djunkið.
Svo hvet ég auðvitað alla til að koma á hjólum og alvöru trukkum til að gera þetta flottara. Svo hvet ég einnig metalbönd að stofna til sérstakra slagsmálatónleikna.

Fjölmennum niður í bæ og sláumst eins og alvöru metal fucking hausar.

Látiði heyra í ykkur hvað ykkur finnst um þessi mál.

Kveðja Skuggi