Fear Factory hafa lokið vinnslu á öllum aukalögum sem þeir tóku upp á sama tíma og restin af Digimortal disknum. Nokkur lög hafa skipt um titla og heitir lagið “Train Wreck” núna “Forgiveness” og lagið “Slide Song” heitir víst “Maggot”. Öll aukalögin verða líklegast á smáskífum, í bíómyndum og eða kvikmyndum. Lögin á disknum sjálfum eru eftirfarandi:
“Lynchpin”
“Damaged”
“Strain vs Resistance”
“What Will Become”
“No One”
“Digimortal”
“Never End”
“Byte Block”
“Acres Of Skin”
“Invisible Wounds”
Útgáfudagur er 24. apríl og fyrsta smáskífan “Lynchpin” verður gefin út nokkru áður.