Iron Maiden - Fyrstu árin Hljómsveitin Iron Maiden hefur verið ein sú þekktasta í metal heiminum í langann tíma og hefur átt sér dygga aðdáendur alla tíð, eins og einn skólafélaga minn sem var ekki sleipur í ensku og skrifaði Æron Meiden með stórum stöfum á skólatöskuna sína.

En hér kemur fyrsta greinin um sögu þeirra og hún fjallar um fyrstu árin. Ég reyni að koma þessu í þrjár greinar, því að ég held að það nenni enginn að lesa fjórar. . . . .


Það var Steve Harris bassaleikari sem stofnaði hljómsveitina Iron Maiden árið 1976. Harris var þá 19 ára gamall. Hann var nokkuð efnilegur fótboltamaður og æfði um tíma með West Ham, en framtíð hans og áhugi lágu annnarstaðar. Hann var alinn upp í East End í London og hafði verið í nokkrum hljómsveitum þar sem spiluðu einhverskonar útgáfu af pönki blönduðu gamaldags þungarokki í anda Deep Purple, en pönkið var sú stefna sem var ferskust á þeim tíma. Meðal hljómsveita sem hann var í voru Gypsy\'s Kiss og Smiler. Þetta voru bönd sem náðu að troða nokkrum sinnum upp á pöbbum en sundruðust síðan.

Nafnið á Iron Maiden var tekið af gömlu pyntingatæki sem var einskonar kassi alsettur göddum sem hinr ógæfusömu voru látnir dúsa í dögum og vikum saman. Síðar fékk Margaret Thatcher forsætisráðherra Bretlands þetta viðurnefni, en þá var hljómsveitin ekki orðin sérlega þekkt ennþá. Vegna þessa héldu sumir að þeir sæktu nafngift sína til forsætisráðherrans. En hugmyndina af nafni mun Harris hafa fengið eftir að hann sá kvikmyndina The Man In The Iron Mask.

Iron Maiden var beint framhald af því sem Harris hafði verið að gera með þeim hljómsveitum sem hann var áður í. Hann fékk fyrrum félaga sinn úr Smiler, Dennis Wilcock til að koma sem söngvari. Wilcock stakk upp á því að þeir réðu David Murray sem gítarleikara, en hann hafði verið í hljómsveit sem Wilcock hafði verið í og hét Warlock. Annar gítarleikari var ráðinn, en sá hét Bob D\'Angelo. Trommari var Ron Matthews. Vegna þess að Murray samdi ekki við D\'Angelo og Wilcock var hann rekinn eftir nokkra mánuði. Myrray fór þá í hljómsveitina Urchin með æskuvini sínum Adrian Smith og þeir gáfu stuttu síðar út litla plötu.

Þegar Murray fór úr Maiden var ákveðið að ráða hljómborðsleikara í staðinn. Það gekk engann veginn upp og hann var látinn hætta ekki löngu síðar og um skeið voru þeir bara fjórir. Næstu mánuðina gekk á ýmsu og að lokum var söngvaranum Wilcok sparkað ásamt Matthews trommara og Bob D\'Angelo gítarleikara. Í staðinn voru ráðnir söngvarinn Paul Di\'Anno, Trommarinn Doug Sampson og Dave Murray var endurráðinn því að Harris sagðist ekki geta séð af svo góðum gítarleikara. Murray er síðan eini maðurinn fyrir utan Harris sem hefur starfað í Maiden allar götur síðan.

Á þessum tíma var pönkið alsráðandi, en Harris og félagar hlustuðu einnig mikið á þungarokkssveitir eins og Deep Purple, Thin Lizzy, Judas Priest og Ufo. Tónlistin hjá Maiden var á þessum tíma þungarokk eða metal með smá pönklegu ívafi og söngurinn hjá Di\'Anno gaf þessu líka dálítnn pönk stíl. Svona kom hljómsveitin fram í fyrsta sinn í Ruskin Arms klúbbnum í London á gamlaársdag 1977, en Harris hefur alltaf talið það byrjunarreit Iron Maiden.

Eftir að hafa náð dálitlum vinsældum í klúbbum í East End og svæðinu í kring, þá ákváðu þeir að leigja stúdíó í einn dag og taka upp lög sem samin höfðu verið. Þeir tóku upp lögin Prowler, Invasion, Strange World og Iron Maiden. Þeir sendu upptökurnar til plötufyrirtækja og fengu þær gefnar út á lítilli plötu sem hét The Soundhouse Tapes. Hún var gefin út í litlu upplagi 1979 og gersamlega ófáanleg í dag.

Þetta vakti athygli ýmissa aðila og umboðsmaðurinn Rod Smallwood (sem þeir uppnefndu Smallwallet) tók við umboðsmálunum hjá þeim. Þeir komust einnig í tengs við listamanninn Derek Riggs sem hannaði merki handa þeim og teiknaði fígúruna Eddie sem hefur verið á öllum plötum þeirra síðan.

Þeir fengu í framhaldi plötusamning við EMI útgáfuna. Stuttu síðar var ákveðið að bæta við öðrum gítarleikara að hugmynd Smallwood og þá var ráðinn Dennis Stratton. Um það leyti hætti Doug Sampson trommari vegna veikinda og í hans stað kom Clive Burr. Svona skipað tók bandið upp sína fyrstu plötu. Á þessum tíma var metal í mikilli uppsveiflu í Bretlandi og undanfarið ár hafði töluvert að plötum í þeim geira gert það gott. Í mars kom út fyrsta lagið af fyrstu plötunni en það var Running Free. Það komst í 36. sæti á vinsældalistnum í Bretlandi og í kjölfarið var þeim boðið að spila í Top Of The Pops þættinum í BBC. Þeir neituðu hinsvegar að koma fram nema þeir fengju að flytja lagið live, því að þaim fannst aulalegt að standa og “mæma”. Það var að lokum fallist á það og þeir urðu fyrsta hljómsveitin til að koma fram live í þættinum síðan Who gerði það 1973.

Platan kom síðan út 14. apríl 1980. Hún fékk einfaldlega nafnið “Iron Maiden” og á umsalginu var fyrsta útgáfan af Eddie sem teiknuð hafði verið af Derek Riggs. Hann var dálítið öðruvísi á þessari mynd er síðar varð og á síðari útgáfum af þessari plötu hefur honum verið breytt dálítið. Platan var hrá með dáltilu pönk yfirbragði og á henni var m.a. að finna þrjú af þeim lögum sem höfðu komið út á Soundhouse Tapes árið áður.

Með þessari plötu töldu margir að fædd væri ný stefna sem Geoff Barton blaðamaður á Sounds og síðar ritstjóri Kerrang hafði árið áður kallað NWOBHM eða New Wave Of British Heavy Metal. Metal var aftur komið á kortið og árið 1980 ári kom út fjöldi platna með með hljómsveitum sem flokkuðust undir þessa stefnu. Sumar þeirra voru nýjar en aðrar voru eldri og höfðu öðlast nýtt líf. Svo einkennilegt var það á þessu ári, að margar eldri hljómsveitir gáfu út sínar bestu plötur í áraráðir. Sum laganna af fyrstu plötunni hafa fylgt Maiden alla tíð eins og Prowler, Running Free, Phantom Of The Opera og Iron Maiden. Platan náði 4 sæti á vinsældalistanum í Englandi.

Þetta sama ár komu einni út tvær aðrar litlar plötur með þremur lögum hvor. það voru Sanctuary og Women In Uniform. Umslögin á báðum þessum smáskífum öllu töluverðum deilum því að á því fyrra sást Eddie myrða Margaret Thatcher með öxi, en á því síðara náði hún fram hefndum því að hús sat fyrir Eddi vopnuð vélbyssu. Þetta varð auðvitað bara til þess að vekja meiri áhuga á bandinu. Maiden hafa alla tíð verið duglegir við að gefa út smáskífur með lögum sem ekki var að finna á stóru plötunum og oft var um að ræða lög eftir aðra. Í árslok 1980 hætti Dennis Stratton gítarleikari, en hann var dálítið eldri en hinir í bandinu og passaði einhvernveginn aldrei inn í félagskapinn. Í hans stað var ráðinn Adrian Smith æskuvinur Dave Murray.

Þegar næsta plata var í bruðarliðnum var ljóst að það þyrfti að vanda vel til verka því að efniviðurinn var til staðar til að gera mikið úr bandinu. Upptökustjóri var fenginn Martin Birch, en hann hafði m.a. verið við upptökur á mörgum plötum Deep Purple og verið upptökustjóri hjá Black Sabbath, Rainbow, Whitesnake og fleiri þekktum hljómsveitum. Hann breytti sándinu, þétti það og pússaði til. Trommurnar voru líka áberandi framar og bassaleikur Harris naut sín betur en á fyrstu plötunni. Í raun má segja að Birch hafi búið til þetta Iron Maiden sánd sem þeir hafa allar götur síðan verið þekktir fyrir. Platan kom út í febrúar 1981 og hét “Killers” Hún fékk góðar viðtökur og Maiden voru þegar krýndir konungar NWOBHM. Hæst náði platan 12 sæti á vinsældarlista í Bretlandi. Hún seldist í upphafi miklu betur en fyrsta platan en þegar fram liðu stundir reyndist sú fyrsta lífseigari. Það voru mörg frábær lög á Killers, en aðeins Wrathchild og í seinni tíð Killers hafa lifað af þeim. Martin Birch sagði í viðtali á þessum tíma að Iron Maiden hefðu í sínum huga tekið þann sess sem Deep Purple höfðu áður og það væri margt líkt með að vinna með þessum tveimur hljómsveitum.

Á eftir Killers fylgdi stór hljómleikaferð um allan heiminn þar sem þeir ýmist hituðu upp fyrir sveitir sem höfðu náð að tryggja sig betur í sessi eins og Kiss og Judas Priest eða voru sjálfir aðalnúmerið eins og í Japan. Þar var tekin upp lítil hljómleikaplata með fjórum lögum og gefin út þar í landi. Hún hét Maiden Japan og var vísað til frægrar hljómleikaplötu Deep Purple, Made In Japan.

Það var ljóst að næsta plata Iron Maiden yrði afar þýðingarmikil því að húnn myndi ráða því hvort þeir næðu að slá almennilega í gegn. Fræjunum var sáð, en það vantaði ennþá töluvert á frægðina. Á árinu 1981 spiluðu þeir á 125 hljómleikum og það hefur alltaf verið eitt aðalsmerki þeirra hversu duglegir þeir hafa verið við að spila vítt og breytt. Paul DiAnno söngvari lifði hátt og skemmti sér mikið og það tók sinn toll. Hann var með fremur viðkvæma rödd og skemmtilífið, miklar reykingar og áreynsla vegna hljómleika ollu því að röddin í honum var farin að gefa sig á köflum. Það þurfti að fresta nokkrum hljómleikum vegna þessa og hann reyndi lítið að bæta úr þó að læknar sögðu honum að ef hann ætlaði að halda röddinni yrði hann að hætta að reykja og drekka ekkert strekara en te. Það kom að því að félagar hans gáfust upp og hann var rekinn haustið 1981.

Þetta olli ákveðinni óvissu. Að vísu var strax tilkynnt að nýr söngvari hefði verið ráðinn en það var alltaf erfitt að skipta um söngvara, því að hann gefur tónlistinni ákveðinn karakter. Þegar þeir leituðu að eftirmanni Di\'Anno þá fóru þeir ekki langt yfir skammt sem fyrr. Sá sem var valinn hafði verið í hljómsveitinni Samson, en Clive Burr trommari Maiden hafði verið þar nokkrum árum áður. Söngvarinn gekk undir nafninu Bruce Bruce en hét réttu nafni Paul Bruce Dickinson.

Þeir spiluðu á nokkrum tónleikum áður en upptökur hófust á nýrri plötu og þóttu tónleikarnir tekast afar vel. Dickinson féll mjög að eldri lögunum og gaf þeim nýtt líf. Upptökur á nýju plötunni hófust snemm árið 1982 og hún kom út í lok mars 1982. Platan hét “The Number Of The Beast” og titillagið hófst á ritningarlestri úr Biblíunni þar sem lesinn var spádómurinn um Andkrist (the beast). Það var undarlegt að lagaröðinni á plötunni var oft breytt síðar þannig að hún hófst á titillaginu, en upphaflega var Invaders fyrsta lagið. Áður en platan kom út var lagið Run To The Hills gefið út á smáskífu. Það fékk mjög góðar viðtökur og því var plötunnar beðið með mikill eftirvæntingu og hún rauk strax í efsta sætið í Bretlandi.

Margir telja þetta hafa verið bestu plötu Maiden frá upphafi og vissulega fékk hún sess sem klassísk metal plata. Kraftmikil lög frábært sánd, þungur trommuleikur og öflugur bassi. Söngur Bruce Dickinson eins og hann kallaði sem nú var fyrsta flokks. Platan innsiglaði frægði Iron Maiden og það var þegar vitað að það yrði erfitt að fylgja henni eftir.