The Fucking Champs eru alveg dúndurgóð instrumental metall sem fær þig alltaf til að grípa í loftgítarinn.
Ég var á Laugarveginum í góðum fíling að kaupa mér eikkað fyrir sjálfann mig blablabla whatevah en málið er að ég rakst á plötubúð sem ég man ekki hvað heitir ( hún er lítil og einkafyrirtæki bra á laugaveginum ). Ég byrjaði að spjalla aðeins við gaurana sem voru að afgreiða og spurði þá hvort þeir ættu eikkern metal í gegn. Þeir stukku undir borðið hjá sér og náðu í The Fucking Champs IV diskinn og þvílíkt blöstuðu lag sem heitir Thor is like Immortal og ég hafði bra aldrei heyrt annað eins. Ég varð ástfanginn við fyrstu hlustun og lagði í það að kaupa diskinn. Svo koma bra í ljós að þessi diskur var bra allur þrusugóður og lögin voru fá sem ég fílaði ekki, reyndar eru öll lögin á þessum disk alveg mössuð. Endilega tjékkið á þessari hljómsveit.