Jæja góðir matargerðarar.

Nú er þessi keppni búin og var Kobbmeister sigurvegari. Hægt er að sjá uppskriftina hans hér að neðan.

Þáttaka var lítil, Kobbmeister var sá eini sem tók þátt.

Nú vil ég að þið gerið betur í næstu keppni en viðfangsefni hennar eru smákökur svona í tilefni þess að jólin eru að koma.

Þessi samkeppni verður styttri, tími til að skila inn rennur út 18. des.

Sem fyrr á að senda skilaboð til mín hér í gegnum huga eða senda tölvupóst á girlygirl@strik.is. Flott væri ef einhver nennti að senda mynd með!

Bætt við 11. desember 2006 - 19:35
Ég biðst svo innilega afsökunar!! Það hafa tvær aðrar kökur borist í keppnina en ég hef gleymt þeim!

Ekki láta þetta hindra ykkur að taka þátt!
Just ask yourself: WWCD!