Brjóstakaka Vinkona mín hringdi í mig einn laugardaginn í mars og vildi að við gerðum köku handa kærastanum hennar í síðbúna bóndadagsgjöf þar sem hún gerði ekkert fyrir hann þann dag. Svo við ákváðum að búa til brjóstaköku!

Ég notaði í þetta djöflatertu uppskrift ásamt viðeigandi súkkulaðikremi og mótaði þessu fögru brjóst(notaði skál sem form), og setti síðan marsipan yfir allt. Var í fyrsta sinn sem ég notaði marsipan og það gekk ótrúlega vel!
Og ég var mjög hissa hve marsipanið passaði vel með súkkulaðikökunni.