Súkkulaði
“Marquise”

Þess má til gamans geta að þessi uppskrift er áætlaður fyrir 6. ;)

250 g suðusúkkulaði
150 g smjör
5 stk. eggjarauður
5 stk. eggjahvítur
80 g flórsykur

Bræðið saman súkkulaði og smjör í vatnsbaði. Þeytið eggjarauðurnar og bætið saman við bráðið súkkulaðið. Þeytið svo saman eggjahvítur og sykur þangað til það er orðið stíft og bætið síðan varlega saman við með sleikju.

Berið fram með súkkulaði sósu, jarðaberjasósu og þeyttum rjóma