Hafið þið reynt að gera samanburð á Gas og Kolagrilli ?
Þegar ég bjó á Íslandi þá var maður fastur í þessari gasgrill menningu, en eftir að ég flutti hingað til Danmerkur þá fór ég að prófa kolagrillið og mér persónuleg finnst kolagrillið gefa betra bragð af matnum. Ég prófaði hérna í garðinum hjá mér bæði gasgrill og kolagrill á sama tíma og með eins kjöt á báðum og smakkprufan kom betur út á kolagrillinu. Þið sem eruð föst í gasgrillmenningunni á íslandi ættuð að prófa að kaupa svona einnota kolagrill sem fást minnir mig í flestum búðum á Íslandi og gera samanburð á næsta grilldegi. Allavega væri gaman að heyra álit fólks á þessu.

Kveðja
StarCat