Ég á í fórum mínum alveg rosalega góðar ídýfur. Önnur er fyrir ávexti en hin er til að bera fram með tortillaflögum.

Jógúrt-ídýfa

1/2 bolli létt vanillujógúrt
1/2 bolli sýrður rjómi
1-2 msk. púðursykur
1/4 tsk. kanill
Blandið vel saman. Hyljið skálina og kælið. Berið fram með bananabitum, hunangsmelónu, cantaloupe-melónu, jarðarberjum og ananas.

Ídýfa frá Mexikó

1 dós Refried Beans
1/2 tsk. chiliduft
3 skvettur einhver sterk sósa, s.s. Tabasco
2 msk. laukur, fínt saxaður
1/4 bolli sýrður rjómi
salt eftir smekk
Blandið öllu vel saman. Kælið í a.m.k. 1 klst. Berið fram með tortillaflögum.
Sá sem margt veit talar fátt