Kaldur brauðréttur

1 lítil dós majónes
300 g rækjur
1/2 dós ananaskurl
1 rauð paprika
1 græn paprika
1/2 - 1 púrrulaukur
2 - 3 tómatar
1/2 agúrka
hvítt brauð (gróft ef vill)

Blandið saman majónesi, rækjum og ananaskurli. Rífið brauðið niður í fat og setjið rækjublönduna þar ofan á. Grænmetið er skorið smátt og sett ofan á.

Borið fram vel kalt.