Banana- og hnetuþeytingur



Sætur og góður þeytingur . Bananarnir og hnetusmjörið vinna vel saman.



Hagnýtar upplýsingar:


Næringargildi miðað við 100 g
g kJ kkal %
Orka 541 130 100
Fita 10 384 93 72
Kolvetni 8 132 31 24
Prótein 2 26 6 5
Trefjar 1





Undirbúningur 10 mín
Matreiðsla mín
Einfaldleiki Létt


Hráefni: Fyrir hve marga:12345678910111213141516171819202122232425

Setja á innkaupalista:
5 dl klaki
2½ dl rjómi
2 stk bananar
2 msk hnetusmjör (svolítið kúfaðar)
2 msk hunang


Aðferð
Maukið saman banana, hnetusmjör og hunang í matvinnsluvél. Bætið rjómanum út í og blandið þar til slétt og mjúkt. Bætið að lokum klakanum saman við og vinnið. Berið fram í háu glasi með röri.

Hollráð Hartmanns Þeytingana er hægt að geyma í hitabrúsa eigi ekki að njóta þeirra strax.