Einfalt og gott (ef þér finnst hnetusmjör gott) :)

Innihald:

Svínalund - skorin í 5cm langa kubba
salt & svartur pipar
1 ferna Matreiðslurjómi
3-4 msk. Hnetusmjör, (mér finnst betra ef það er með
hnetum í, en þið ráðið)

Stillið ofninn á 180°C

Byrjið á því að krydda svínalundirnar með piparnum og saltið smá. Steikið þær örsnöggt á pönnu, bara til að loka þeim.
Hrærið saman í potti rjóman og hnetusmjörið svo að hnetusmjörið bráðni.

Setjið því næst lundirnar í eldfast form og hellið sósunni yfir og inní ofn í ca. 20 min en tíminn fer eftir hversu þykkar lundirnar eru!

Mér finnst best að hafa með þessu kartöflur skornar niður og bakaðar í ólífuolíu. Og svo bara ferskt salat.

Verði ykkur að góðu ;)