Ef einhver þarna úti er með óþol fyrir tómötum ætti þetta að koma sér vel:) Líka auðvitað ef þig langar í pizzu en átt ekki pizzasósu…

Í stað pizzasósu er hægt að setja matarolíu í glas og krydda hana vel. Þá set ég mikið af basilíku, oreganó og laukdufti og svo aðeins minna af salti, pipar og hvítlauksdufti. Ef maður kryddar olíuna nógu mikið þá kemur hún alveg í stað pizzasósu. Svo er henni smurt á botninn, passið bara að vera ekkert að spara.
Hello, is there anybody in there?