Ótrúlega gott og saðsamt

1 dós af kjúklingabaunum
safi úr 1 sítrónu
1-2 tsk tahini (sesamfræ-smjör, yfirleitt til í krukkum í heilsuhornum í búðum)
1/4-1/2 tsk cummin
ólífuolía

Allt sett saman í matvinnsluvél, hef líka náð að setja þetta í töfrasprotann minn.
Sett síðan í skál, stundum gott að setja e-ð krydd ofaná ég set stundum cayenneduft til að “hita” þetta dálítið ;)
dreypið ólífuolíu yfir og berið fram með hituðu pítubrauði eins og salat..
Einnig gott að raða tómatsneiðum með og setja ofan á sneiðarnar :)
Verði ykkur að góðu