Landslið Klúbbs Matreiðslumeistara hefur gefið út í samvinnu við Sláturfélag Suðurlands og Uppskriftir.is, dagatal fyrir árið 2002. Hið karlmannlega kokkalandslið heldur áfarm að heilla húsfreyjur upp úr skónum með lekkerum og ljúffengum lambakjötsuppskriftum.

Í dagatalinu eru fallegar myndir af girnilegum réttum og eru allar uppskriftir nokkuð einfaldar og þægilegar

Á árinu 2002 keppir landsliðið meðal annars á Heimsmeistaramótinu í Lúxemborg og eru miklar vonir og væntingar bundnar við liðið, enda talið eitt það efnilegasta í heimi. Þjálfarinn er líka efnilegur en hann hefur verið viðloðandi keppnismatreiðslu og tekið þátt í nær öllum mögulegum matreiðslukeppnum á ferli sínum.