Hér er ég með frábært salat á ritz kex.

Rauðlaukur
egg
majones


Rauðlaukur: Skerið niður rauðlaukinn í smátt.

Hversu mikið? jú það fer bara eftir smekk ef þú vilt hafa mikið bragð og mjög sterkt þá seturu heilan lauk en ef þú vilt ekkert hafa þetta neitt svakalega sterkt þá er hálfur nóg. Ég hef oftast hálfan það er alveg nóg. En ég vara samt við að ef það er mikill laukur þá getur þetta orðið full sterkt. Setur rauðlaukinn ofan í skálina sem salatið á að vera.

Egg: 3 – 4 stykki. Sýður þau. (harðsoðinn) Setur þau í eggjaskera. Lætur þau svo ofan í þar sem laukurinn er.

Majones: ca. 2 – 3 skeiðar ofan í skálina (eftir smekk hversu mikið).

(gott að hafa þetta í ekki of litilli skál þegar þú ert að búa til salatið, frekar að færa salatið þegar það er tilbúið yfir í minni skál)

Þetta er frábært salat ég hef allaveganna fengið mikið hrós fyrir það. Allaveganna mjög vinsælt á mínu heimili.

Verði ykkur að góðu ;)