Góðan Daginn

Ég heiti Elvar Örn Reynisson

Ég byrjaði fyrir tveim árum að setja saman og skrifa vef um mitt helsta áhugamál en það ku vera matur og matargerð. Sumir sögðu mér að stela bara öllu sem væri á öllum hinum vefjunum og vera þannig með stærsta og flottasta vefinn á íslandi.

Ég ákvað að bera smá virðingu fyrir vinnu annara en þess má geta að ekki var mikið skrifað um mat og matargerð á þeim tíma á netinu. uppskrftir.is var ekki einu sinni til þá þannig að ekki var mikið að stela hvort eð er.

tveim árum síðar er fátt skemmtilegra en að skoða mig um á öðrum vefsetrum og komast að því að það er verið að stela af mínum vef.
Sumum finnst það kannski skrítið að mér finnist það skemmtilegt en þetta er jú viss viðurkenning fyrir mig og mín störf. Auðvitað væri skemmtilegra ef viðkomandi myndi taka það fram hvaðan efnið er komið en auðvitað eru ekki allir sem hugsa fyrir því. Sjálfur er ég nýbyrjaður á því og passa vel upp á að réttra heimilda sé getið en ég held samt að það sé vonlaus barátta og því held ég að best sé að hafa gaman að því að einhver þarna úti skuli kæra sig um að stela verkum mínum.



kær kveðja og lifið öll heil
Elvar Örn Reynisson
www.veitingavefurinn.is