Þetta er bara gott og alveg ferlega einfalt. Kannski aðeins í dýrara kanntinum en er þess virði finnst mér.

1 Doritos Dippas Ostasósa
1 Doritos Dippas mild eða sterk sósa fer eftir smekk
1-2 dollur hreinn rjómaostur

Tekur fram eldfast mót, skellir ostasósunni í botninn og passar að það þeki allan botninn.
Tekur sterku (eða mildu) salsasósuna og smyrð því öllu yfir ostasósuna.
Hitaðu rjómaostinn í smástund í örbylgju til þess að mýkja hann aðeins, þá er auðveldara að dreifa honum yfir.
Dreifir rjómaostinum yfir sullið og smyrð vel.
Hitar í ofni í ca 15-20 mín þangað til osturinn er almennilega bráðnaður og allt sullið er orðið heitt og gott.

Skellir Doritos í skál, færð þér drykk að eigin vali, ídýfan á borðið, hentu þér í sófann og njóttu kvöldsins :)

þetta er nóg til að duga fyrir ca. 2-4 manneskjur fer allt eftir því hvað hver borðar mikið :) njótið vel