Já ég hef smakkað svona. Rosalega gott!
Innihald:
4 eggjahvítur
2 dl sykur
2 dl púðursykur
Lakkrískurl og súkkulaðispænir eftir þörfum
Aðferð:
skiljið eggjahvíturnar í gler- eða málmskál (ekki plast). bætið sykrinum og púðursykrinum út í og þeytið vel (eða þar til deygið er orðið svo stíft að það haggast varla þó skálinni sé hallað)! bætið súkkulaðinu og lakkrísnum út í og hrærið saman. Setjið í cupcake form (bara lítið þar sem þær stækka) og bakið í um 20 mín á 150° eða þar til komnar eru litlar sprungur í kökurnar.
Gott getur verið að nota kitchen aid matvinnsluvélar og að bera kökurnar fram með ís.