Ég veit ekki hvernig mér datt þetta í hug en þessi samloka er bara geðveik… :-o

Það sem þarf í hana er:

2 brauðsneiðar
1 egg
skinkusneið
tómatsósa

Ég veit þetta hljómar ekkert ógeðslega vel en þetta leynir ekkert smá á sér :)

Byrjið á því að smyrja brauðsneiðarnar með tómatsósu (eftir smekk) og setjið lítið af olíu á pönnu og steikið skinkuna aðeins og setjið á brauðsneiðina. (Passa sig á olíunni, hún getur skotist út um allt og það brennur)

Svo spælið þið egg undir lágum hita og setjið á brauðið og hina brauðsneiðina ofan á og njótið!


Svo er ég með aðra samloku sem er geðveik :P

Það sem þarf:
2 brauðsneiðar
Pítusósa
skinka
gúrka (í sneiðum, eftir smekk)
Kál (eftir smekk)
Bacon steikt á pönnu (eftir smekk)

Þetta segir sig eiginlega sjálft :P

Njótið :)