Sumarsvalandi

Óáfengur fordrykkur
1 hátt glas

1 dl fersk jarðarber
½ msk flórsykur
ísmolar eða ískurl
2-3 msk mjúkur vanilluís
sódavatn
1 heilt jarðarber til skrauts

Merjið jarðarberin með gaffli og bætið flórsykri saman við. Setjið ísmolana í plastpoka og myljið með hörðum og þungum hlut. Látið jarðarberjamaukið neðst í glasið, því næst mulda ísmola, fyllið glasið með sódavatni og setjið tvær til þrjár matskeiðar af mjúkum vanilluís efst. Stingið röri í og festið heilt jarðarber á glasbarminn.