Getur einhver sagt mér frá hvernig er gott að elda eggaldin? Ég kaupi mér stundum svoleiðis afþví mér finnst þau svo falleg, en kann svo ekkert að borða þau. Ég hef heyrt eitthvað um að það sé gott að grilla sneiðarnar.

Ég prófaði áðan að fikta aðeins, sneiddi eitt niður og steikti það á pönnu með smá salti og pipari, en það var svo ekkert sérstaklega bragðgott. Það var eiginlega einsog fiskur á bragðið og mér finnst fiskur vondur.

Einhverjar hugmyndir?