1.dl Rjómi
300 g Toblerone súkkulaði
2.msk brandí eða romm
blönduð ber og ávextir í bitum

Hitið rjómann í litlum potti.
Bræðið síðan súkkulaðið í rjómanum, hrærið í á meðan. Bætið svo brandíinu útí.
Hellið Toblerone blöndunni í fondue pott og haldið henni heitri en varist að hún hitni um of.
Setjið ávaxtabita og ber á foundue gaffla eða grillspjót og dýfið þeim síðan í heita súkkulaðiblönduna!