Þetta eru magengstoppar með súkkulaði og lakkrís sem eru ótrúlega góðir.

uppskirft:
3 stk. eggjahvítur
200 g púðursykur
150 g súkkulaði (best ef það er suðu súkkulaði)
Lakkrískurl eftir smekk (má sleppa)

aðferð:
Þeytið eggjahvítur og púðursykrið saman þar til blandan er orðin alveg stíf.
saxið niður súkkulaðið og blandið rólega saman við ásamt lakkrískurlinu.
Setjið á plötu í toppa og bakið við 170°C í 1-13 mín eða þangað til þær eru bakaðar í gegn.

Verði ykkur að góðu.

-Weasley