banana pönnukökur Uppskrift fyrir fjóra til sex:

2 þroskaðir bananar, stappaðir
235 ml. mjólk
125 gr. hveiti
1 egg, hrært
1 msk. sykur
2 tsk. lyftiduft
1/4 tsk. salt
30 ml. olía

1. Setjið hveitið, sykurinn, lyftiduftið og saltið í skál og blandið saman.

2. Í aðra skál, setjið eggið, mjólkina, olíuna og bananana og blandið saman.

3. Hellið hveitiblöndunni yfir í bananablönduna; deigið verður eilítið kekkjótt.

4. Hitið olíu á pönnu við miðlungshita. Ausið smá deigi á pönnuna og steikið pönnukökuna þar til hún er gyllt að lit. Snúið pönnukökunni þá við og steikið á hinni hliðinni.

5. Steikið pönnukökur úr öllu deiginu. Berið fram strax.
Aaaa